Steve Jobs á WWDC - staðfest

Untitled-1.jpgSamkvæmt bloggsíðu Fortune, Apple 2.0, mun Steve Jobs vera með kynningu á WWDC ‘08 (Worldwide Developers Conference). Þetta hefur þó ekki verið staðfest opinberlega af Apple. - staðfest!

WWDC er ráðstefna sem haldin er árlega í San Francisco fyrir Mac OS X-hugbúnaðarþróendur um allan heim og oft á tíðum eru nýjar vörur kynntar frá Apple er Steve Jobs stígur á svið.

Ráðstefnan hefst 9. júní og stendur til 13. þess mánaðar.

Steve Jobs mun halda kynninguna 9. júní kl. 17:00 á íslenskum tíma ef fréttin reynist sönn. Fylgist með á Maclantic!

apple20.blogs.fortune.cnn.com